Fjarskipti hf. rekstrarfélag Vodafone á Íslandi hagnaðist um 239 milljónir króna á örðum ársfjórðungi þessa árs samanborið 248 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Dregst hagnaður félagsins því saman um 3% milli ára.

Heildartekjur Fjarskipta á tímabilinu námu 3.386 milljónum króna samanborið við 3.467 milljónum árið áður. Það er tekjulækkun um 2%. Kostnaðarverð seldra vara stóð í stað frá sama tímabili í fyrra.

Rekstrarkostnaðurfélagsins nam 1.145 milljónum á ársfjórðungnum dróst saman um 4% miðað við sama tímabili í fyrra. Rekstarkostnaður á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2.237 milljónum og dróst saman um 8% frá fyrri helmingi árs 2016.

EBITDA hagnaður félagsins nam 761 milljónum króna sem er hækkun um 1% milli ára. EBITDA hlutfall var 22,5% í lok annars ársfjórðungs. Eiginfjárhlutfall nam 48,3% í lok tímabilsins og var handbært fé frá rekstri 513 milljónir króna. Eigið fé Vodafone í lok tímabilsins nam 7.395 milljónum króna. Eignir Vodafone námu 15.310 milljónum í lok tímabilsins á meðan skuldir námu 7.915 milljónum í lok tímabilsins.

Í tilkynningu vegna uppgjörsins segir Stefán Sigurðsson, forstjóri félagsins:

"Rekstur annars fjórðungs gekk ágætlega og hækkaði EBITDA um 1% frá síðasta ári. Mjög góður gangur var í rekstrinum í apríl og maí en lækkun reikitekna í júní í tengslum við innleiðingu á Roam like Home innan EES hafði neikvæð áhrif.  Ekki bætti úr skák í samanburði að júní á síðasta ári var besti reikimánuður ársins þar sem margir Íslendingar fóru til Frakklands að styðja íslenska landsliðið. Innleiðing Roam like Home dró þannig úr aukningu rekstrarhagnaðar á fjórðungnum en vöxtur í tekjum af  sjónvarpsstarfsemi félagsins og  mikill árangur í lækkun rekstrarkostnaðar skilaði engu að síður ágætu uppgjöri.  Rekstrarkostnaður fyrstu 6 mánuði ársins lækkar um 8% frá sama tímabili í fyrra sem sýnir að hagræðingaraðgerðir sem félagið fór í fyrir um ári eru að skila sér. Tekjur félagsins af interneti hækkuðu í uppgjörinu einkum vegna þess að félagið tók yfir rukkun aðgangsgjalda Gagnaveitu Reykjavíkur gagnvart viðskiptavinum en sú breyting hefur sambærileg áhrif á kostnaðarverð seldra vara.

Félagið hefur nú fengið reynslu af reiki í júlí , eftir innleiðingu Roam like Home,  það er bæði af notkun Íslendinga erlendis og notkun erlendra aðila á Íslandi. Reynslan er í stuttu máli sú að viðskiptavinir Vodafone sem ferðast í Evrópu innan landa EES hafa aukið gagnamagnsnotkun sína mun meira en þeir viðskiptavinir íslenskra fjarskiptafélaga sem ferðast til Íslands. Viðskiptavinir Vodafone juku meðal gagnamagnsnotkun um 351% sem er næstum tvöfalt meira en aukning meðal gagnamagnsnotkunar viðskiptavina evrópskra fjarskiptafyrirtækja á kerfum Vodafone á Íslandi sem var 160%.  Þessi notkun Íslendinga er mun meiri en forsendur gerðu ráð fyrir og eykur nokkuð kostnað félagsins af þessari breytingu. Áhrif afnáms reikis í Evrópu mun hafa þau áhrif á fyrirtækið að árstíðasveifla í rekstrinum mun minnka þar sem ekki koma sérstakar tekjur af ferðalögum viðskiptavina í Evrópu. Þriðji fjórðungur sem hefur verið stærsti fjórðungur félagsins verður með minni árstíðarsveiflu og þannig svipaðari öðrum fjórðungum.  Félagið hefur nú þegar gripið til ýmissa aðgerða á kostnaðar- og tekjuhliðinni sem munu draga úr áhrifum á rekstur félagsins enda stendur félagið við horfur sínar um að skila EBTIDA fyrir árið í kringum 3.250 m.kr.

Á fjórðungnum hélt ferli við að kaupa eignir 365 áfram með samskiptum við Samkeppniseftirlitið þar sem félagið skilaði bæði samrunaáætlun, fékk viðbrögð eftirlitsaðila og markaðarins við henni og gerði tillögu að skilyrðum. Búast má við endanlegu svari í byrjun september eða október og ganga kaupin þá í gegn mánuði síðar verði þau heimiluð. Þrátt fyrir ítarleg og öflug skilyrði til að gæta samkeppni getur félagið staðið við fyrri yfirlýsingar um hækkun EBITDA félagins við kaupin upp á 1.750 m.kr. sem færu að fullu að hafa áhrif innan 18 mánaða frá sameiningu."