Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sérsniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónust, en verkefninu er ætlað að veita þátttakendum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra.
Tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í hraðalinn sem hefst þann 15. janúar næstkomandi en hann verður til húsa í nýju húsnæði Íslenska ferðaklasans að Fiskislóð 10 að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Óskað var eftir eftir lausnum sem gætu fjölgað afþreyingarmöguleikum í ferðaþjónustu á Íslandi, styrkt innviði greinarinnar og stuðlað að dreifingu ferðamanna um allt land, allan ársins hring.
Alls bárust 113 umsóknir í Startup Tourism að þessu sinni sem er 20% aukning á milli ára, en umsóknarfrestur rann út þann 11. desember. Af þeim hópi voru 25 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku. Samkvæmt fulltrúa dómnefndar einkenndu mikil gæði og sterkur bakgrunnur umsóknirnar í ár og var valið því ekki auðvelt.
Hópurinn sem kemur vítt og breitt af landinu vinnur bæði að tæknilausnum á sviði ferðaþjónustu og nýjum eða betri afþreyingarmöguleikum. Í tíu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan ferðaþjónustunnar og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.
Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið og Vodafone, en Icelandic Startups og Íslenski ferðaklasinn sjá um framkvæmd verkefnisins.
Eftirtaldin tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Tourism árið 2018:
- 1. Arctic Surfers
Sérhæfð ferðaþjónusta fyrir brim-, róðra- og snjóbrettaiðkendur í ævintýraleit
- 2. Havarí
Gisting og viðburðir á lífrænu býli í Berufirði
- 3. Igloo Camp
Einstök tjaldhótel í stórbrotinni náttúru
- 4. Kaffi Kú og The Secret Circle
Ferðaþjónusta og upplifun í Eyjafjarðarsveit
- 5. Propose Iceland
Viðburðaþjónusta fyrir ferðamenn á biðilsbuxum
- 6. Pure Magic
Leikhúsupplifun byggð á íslenskum sagnaarfi
- 7. basicRM
Sjálfvirkni í verðlagningu fyrir ferðaþjónustu
- 8. Stórsaga
Víkingaheimur í Mosfellsdal
- 9. Under the Turf
Þjóðleg upplifun í gömlum torfbæ í Borgarnesi
- 10. When in Iceland
Veflausn sem tengir erlenda ferðamenn við einstaklinga sem vilja bjóða uppá afþreyingatengda ferðaþjónustu