Volkswagen hefur innkallað 1.950 díselbíla í Kína. Þetta er fyrsta innköllun á bílum sem innihalda svindl hugbúnaðinn sem hannaður var til að sniðganga útblástursviðmið.

Tæknileg lausn Volkswagen á hugbúnaðinum hefur ekki enn verið samþykkt af kínverskum yfirvöldum en Volkswagen hefur verið undir miklum þrýstingi að hefja innköllun á bílunum

Yfirvöld í Kaliforníu tilkynntu á föstudaginn sl. að Volkswagen hefði þangað til 20. nóvember til að opinbera áætlun fyrirtækisins á innköllun og lagfæringu á öllum bílum í fylkinu.

Talið er að um 11 milljónir bíla innihaldi hugbúnaðinn um allan heim, þar af um fimm milljón undir merkjum Volkswagen, 2,1 milljón undir merkjum Audi og um 1,2 milljón undir merkjum Skoda.