Umtalsverðar breytingar hafa verið gerðar á vöruhúsi Icelandair Cargo og IGS á Keflavíkurflugvelli. Vöruhúsið hefur verið stækkað um 1.000 m2 og er nú alls 6000 m2. Öll stækkunin er hitastýrð til að koma til móts við gæðakröfur í matvælaflutningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Breytingunni er ætlað að mæta aukinni eftirspurn eftir flutningum á ferskvöru með flugi, svo sem innflutningi á grænmeti og útflutningi á sjávarafurðum.

„Gæðakröfur á flutningum ferskra matvæla eru mjög háar og með nýju kældu vinnurými í vöruhúsi verður kælikeðjan styrkt. Með þessu móti er hægt að tryggja betri þjónustu og mæta auknum frakt flutningum með farþegaflugi Icelandair um Keflavíkurflugvöll þar sem ferlar eru aðrir en með fraktvélum,“ segir í tilkynningunni.

Þá hafa verið gerðar breytingar á flæði og uppstillingu vöruhússins og umtalsverðar fjárfestingar verið gerðar til að mæta ströngum öryggiskröfum um skimun og öryggisþáttum tengdum flugfrakt.  „Þannig aukast afköst vöruhússins til muna og afgreiðslutími helst stuttur þrátt fyrir aukningu í flutning og auknum öryggiskröfum yfirvalda.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)