Lindarhvoll ehf., sem heldur utan um þær eignir sem ríkissjóði áskotnuðust með samkomulagi við kröfuhafa föllnu bankanna, hefur auglýst til sölu heildverslunina Vörukaup ehf. í Garðabæ.

Vörukaup er blönduð heildverslun með áherslu á kæliiðnað auk þess sem félagið á einn stærsta loka-lager á Íslandi.

Væntanlegt kaupverð hefur ekki verið gefið upp, en aðilar í fyrirtækjaráðgjöf segja að með mikilli einföldun megi ætla að fyrirtæki sem þetta geti selst á 5,5-8 sinnum EBITDA hagnað síðasta árs. Miðað við þetta, og að því gefnu að aðrir þættir hafi ekki áhrif á verðmat, er félagið nú um 188,3 til 273,9 milljóna króna virði.