Wow air bætir sjö nýjum Airbus flugvélum við ört vaxandi flota sinn. Floti félagsins mun þá telja 24 flugvélar í lok árs 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.

Þar ber hæst að nefna fjórar glænýjar Airbus A330-900neo sem leigðar eru til tólf ára frá CIT Aerospace International. Ný tegund hreyfla minnkar eldsneytisnotkun um 14% miðað við núverandi tækni. Að sögn Wow air er þetta hagkvæmasta breiþotan á markaðnum í dag. Í vélunum verða 365 sæti þar af 42. sæti sem eru stærri, breiðari og auknu sætabili.

Langdrægni Airbus A330-900neo véla er 9.750 km og gæti flogið til Hong Kong eða Honolulu frá Keflavíkurflugvelli. Listaverð hverrar vélar er 291 milljónir dollarar.

Þá hafa verið keyptar tvær Airbus A321ceo ( „Current Engine Option“) flugvélar keyptar beint frá Airbus og ein Airbus A321neo flugvél leigð frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease Corporation. Vélarnar verða notaðar í áframhaldandi stækkun félagsins í Norður-Ameríku og víðar en þessi viðbót þýðir 50% sætaaukningu fyrir félagið.

„Við erum hreykin af því að geta boðið farþegum okkar upp á einn yngsta flugflotann í heiminum. Þessi viðbót gerir okkur kleift að vaxa og leita á ný mið á fjarlægum slóðum. Þá mun stærri og nýrri floti tvímælalaust styrkja okkur í síharðnandi samkeppni þar sem glænýjar flugvélar eru mun hagkvæmari í rekstri,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.