Í dag hófst sala á flugsætum til New York með áætlunarflugi Wow air sem hefst 25. nóvember. Brottför verður klukkan 15:15 sem er töluvert fyrr en hefur verið í boði fyrir Íslendinga svo þeir geta nú nýtt daginn betur í borginni.

Verður flogið þangað daglega allt árið um kring og bætist New York við áætlunarflug félagsins til Norður Ameríku sem flýgur nú til Washington DC, Boston, Los Angeles, San Francisco, Toronto og Montréal.

Nýjar Airbus A321 þotur félagsins verða notaðar í flugið sem fer til Newark flugvallar.