WOW air verður fyrsta flugfélagið til þess að fljúga Airbus A321neo en samningur þess efnis var undirritaður í dag á flugsýningu í París. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu.

„Þetta er veruleg viðbót við flotann og gerir okkur kleift að fljúga vegalengdir upp á meira en sex þúsund kílómetra. Þannig getum við haldið áfram að bjóða upp á nýja áfangastaði með yngsta flota heims,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.

„A321neo mun gera WOW air mögulegt að stækka leiðarkerfi sitt í Evrópu og Norður Ameríku með vél sem er ein sú þægilegasta og hagkvæmasta í rekstri á markaðnum í dag. Burt séð frá lágum viðhaldskostnaði þá býður þessi vél farþegum WOW air upp á frábæra ferðaupplifun,“ segir John Leahy forstjóri Airbus.

„Þessi fyrsta afhending á A321neo í Evrópu sýnir glöggt hversu sterkt og gjöfult samstarf okkar við WOW air er. Við erum einstaklega ánægð að vera tengd þeirra uppgangi á heimsvísu. Á skömmum tíma hefur WOW air náð að verða flugfélag sem nýtir sér óhikað tækninýjungar með góðum árangri. Þessi nýja flugvél mun tryggja áframhaldandi vöxt flugfélagsins þar sem hún drífur lengra á sama tíma og hún heldur eldsneytiskostnaði í lágmarki,“ segir Steven F. Udvar-Hazy stjórnarformaður Air Lease Corporation.

Nýja vélin mun hljóta nafnið TF-SKY og fer í áætlunarflug í byrjun júlí og mun meðal annars fljúga til staða á borð við Tel Aviv í september. Vélin er sautjánda vél WOW air og í henni eru 218 sæti. Í lok árs 2018 verða vélar WOW air orðnar 24 talsins.