Flugfélagið Wow air hefur nú flug til Miami, en áætlunarflug þangað kemur til með að hefjast 5. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu flugfélagsins.

Flogið verður þangað þrisvar í viku, allan ársins hring.

Haft er eftir Skúla Mogensen í fréttatilkynningu frá Wow air að hann telji það ánægjulegt að vera fyrsta íslenska flugfélagið til að bjóða upp á áætlunarflug til Miami og jafnframt að Wow stefni að því að kynna „nýja og spennandi áfangastaði á hagstæðum verðum fyrir farþega okkar.“

Wow air flýgur því til allnokkra staða í N-Ameríku, m.a til Washington DC, Boston, Los Angeles, San Fransisco, Tonronto, Montreal og fyrirtækið hefur flug til New York í haust.