Dohop hefur tekið saman tölur um stundvísi flugfélaga sem fljúga mest frá Keflavík. Dohop notar tölur frá Isavia en sóttar eru upplýsingar um áætlaða brottfarar- og komutíma einstakra fluga í september og þær tölur bornar saman við raunverulegan tíma brottfara og koma.
Þriðja mánuðinn í röð var WOW air óstundvísasta félagið. 65% brottfara WOW air voru á réttum tíma og meðaltöf rúmlega 35 mínútur, 57% komur WOW voru á réttum tíma og meðaltöf var um 36 mínútur.
EasyJet var stundvísast bæði við komur og brottfarir
Icelandair var með 75% brottfara á réttum tíma og meðaltöf var tæpar 9 mínútur, 71% komufluga voru á réttum tíma og meðaltöf var rúmlega 10 mínútur. EasyJet var með 77% brottfara á réttum tíma og meðaltöf var rúmlega 10 mínútur, hlutfall komu á réttum tíma voru 82% og meðaltöf var tæpar mínútur.
Aðeins voru felld niður tvö flug í september, bæði hjá Icelandair.