Wow air flutti 362 þúsund farþega til og frá landinu í september eða um 27% fleiri farþega en í september árið 2017, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Sætanýting Wow air var 88% í september í ár en var 85% í fyrra, og jókst þrátt fyrir 26% aukningu á framboðnum sætiskílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra.

Hlutfall tengifarþega hefur einnig aukist, en í ár var hlutfallið 55% í september miðað við 47% á sama tíma í fyrra. Það sem af er ári hefur Wow air flutt um 2,8 milljónir farþega.

Wow air flýgur nú til hátt í fjörutíu áfangastaða í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Flug til Nýju Delí og Orlando hefst í desember á þessu ári.