WOW air hóf sölu á flugmiðum til Nice í Suður-Frakklandi í vikunni, og mun hefja flug þangað næsta sumar. Þetta kemur fram í frétt Túrista.is.

Jómfrúarferð WOW til Nice verður farin þann 2. júní næstkomandi, en félagið flýgur alla fimmtudaga og sunnudaga fram í miðjan september 2016.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Íslendingar geta flogið beint til flugvallar á frönsku Rívíerunni. WOW air býður einnig upp á ferðir til Parísar og Lyon en til samanburðar býður Icelandair einungis upp á ferðir til Parísar.

Þess ber einnig að geta að EM í knattspyrnu karlmanna verður í Nice haldið meðal annarra borga. Ekki er þó enn víst í hvaða riðli íslenska karlalandsliðið verður og leikir þess verða spilaðir.