WOW air mun frá og með 31. mars fljúga alfarið á London Stansted flugvöll en áður flaug WOW air bæði á Gatwick flugvöll og Stansted flugvöll. WOW air hefur í kjölfar endurskipulagningar á rekstri selt flugtíma sína á London Gatwick flugvelli.

Vegna trúnaðarsamkomulags við kaupanda verður ekki gefið upp kaupverð né kaupandi. Brottfarartímar haldast óbreyttir en flogið er daglega frá Keflavíkurflugvelli kl. 06:10 að morgni og lent kl. 10:20 að staðartíma í London. Brottför frá London Stansted flugvelli er kl. 11:20.

Núverandi flugáætlun WOW air fyrir London Gatwick helst óbreytt þar til skiptingin á sér stað þann 31. mars.
Með þessari breytingu er WOW air að hagræða í rekstri sínum og á sama tíma að skapa aukin tækifæri til áframhaldandi vaxtar á breska markaðnum.