Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) segir Evrópusambandið veita Airbus ólöglega ríkisaðstoð sem nemur milljörðum dollara. Viðskiptaskrifstofa Bandaríkjanna, US Trade Representative (USTR) segir niðurstöðuna leggja grundvöll að því að Bandaríkin leggi aukna tolla á vörur frá Evrópusambandinu.

Í frétt á vef BBC segir að WTO hafi hafnað áfrýjunarkröfu Airbus þar sem flugvélaframleiðandinn hafi ekki brugðist við til að takmarka það tjón sem hann hafi valdið Boeing. USTR hélt jafnframt fram að ríki Evrópusambandsins hafi veitt Airbus 22 milljarða Bandaríkjadala í ríkisaðstoð til að aðstoða félagið við að hefja framleiðslu á Airbus A380 og A350.

Airbus stendur í svipuðu stappi fyrir WTO og bíður niðurstöðu stofnunarinnar í máli félagsins gegn Boeing. Ásakanir milli flugfélaganna hafa gengið á víxl undanfarin fjórtán ár.