Enn hækkar fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tölum Þjóðskrár. Raunverð fasteigna hækkaði um 11,2% milli 2015 og 2016 en nafnverðið um 11%. Í desember hækkaði fasteignaverð um 1,5% milli mánaða. Þar af hækkaði fjölbýli um 1,5% og sérbýli um 1,% og sérbýli um 1,6%. Síðustu tólf mánuði hefur verið á fjölbýli hækkað um 15,3%, sýrbýli um 14,5% og heildarhækkunin um 15%. „Hækkanir síðustu 12 mánaða eru mjög miklar og þarf að fara allt aftur til ársins 2007 til að sjá álíka tölur,“ segir í Hagsjá Landsbankans .

Þar er tekið fram að verðbólga hafi verið lág og stöðug upp á síðkastið og hafi því raunverð fasteigna hækkað talsvert meira en ella. „Vísitala neysluverðs án húsnæðis í desember var um 0,8% lægri en í nóvember 2015, þannig að allar nafnverðshækkanir á húsnæði síðasta árið koma nú fram sem raunverðshækkun og rúmlega það. Raunverð fasteigna hækkaði um 11,2% milli 2015 og 2016 en nafnverðið um 11%,“ er tekið fram.

Jafnari hækkanir en áður

Ef litið er á þróun fasteignaverðs til lengri tíma sést glögglega að þróunin síðastliðin sex ár er jafnari en oft áður að mati greiningardeildar Landsbankans. „Nafnverðshækkanir hafa farið vaxandi og sérstaklega má segja að raunverðshækkanir hafi farið vaxandi á því tímabili. Það er einkum athyglisvert hvernig hækkanir á raun- og nafnvirði hafa haldist í hendur síðustu ár. Þannig þarf að fara allt aftur til ársins 2005 til þess að finna jafn miklar hækkanir á raunverði og urðu árið 2016,“ segir í Hagsjánni.

Hækkunarferillinn á höfuðborgarsvæðinu er því orðinn lengri en oft áður, og sama á við um önnur stærri sveitarfélög á Íslandi. Framboð húsnæðis, þá sér í lagi framboð á fjölbýli er minna en oft áður en markaðurinn getur tekið við og er það mikilvæg ástæða mikilla verðhækkana, að mati Landsbankans. „Nú hillir undir að nýjum íbúðum fjölgi á næstu misserum. Verð nýrra íbúða er væntanlega hærra nú en gengur og gerist um eldri íbúðir og verður svo eitthvað áfram. Byggingarkostnaður hefur hins vegar hækkað mun minna á síðustu árum en íbúðaverð og því ætti að skapast svigrúm til þess að nýjar íbúðir dragi íbúðaverð niður á við,“ er jafnframt tekið fram í Hagsjá Landsbankans.