Strandveiðibátar hafa fiskað vel í maí. Afli allra svæða er meiri enn í fyrra og mun fleiri bátar hafa hafið veiðar.

Landssamband smábátaeigenda segir frá á heimasíðu sinni þar sem tölfræði veiðanna til þessa er greind.

Þar segir að heildarafli hefur aukist um rúmlega þriðjung milli ára og er þorskaflinn kominn í 1.861 tonn. Mest er aukningin á svæði D. Afli þar fer úr 285 tonnum í 519 - sem er 82% aukning.

„Það er í samræmi við fjölda landana sem segir allt til um tíðarfarið,“ segir í fréttinni.

Fiskistofa hefur gefið út 507 leyfi til strandveiða og hafa 457 bátar nú þegar hafið veiðar. Sambærilegar tölur á sama tíma í fyrra voru 451 bátur með útgefið leyfi og 390 höfðu hafið veiðar. Landanir voru í lok 13. dags strandveiða sl. fimmtudag komnar í 3.060 landanir; 906 fleiri en í fyrra, sem er 42% aukning.