Yfirskattanefnd og fjármála ráðuneytið fá ákúrur í skýrslu nefndar um stjórnsýslu skattamála og er gagnrýnin á Yfirskattanefnd öllu harðari. Er nefndin snupruð fyrir langan afgreiðslutíma og fyrir að birta ekki nægilega marga úrskurði sína opinberlega, eins og nefndinni ber lögum samkvæmt.
Innsýn ráðuneytisins í þróun reglna á skattasviðinu og samspil lægra settra stjórnvalda og kæru stigs er sagt í besta falli gloppótt og ráðuneytið ekki sagt tryggja nægi lega vel lögmæti, réttmæti og samræmi stjórnsýslunnar. Er það m.a. sagt stafa af því að ráðuneytið hefur haft takmarkaðan aðgang að úrskurðum Yfirskattanefndar.
Telja skýrsluhöfundar þetta valda þríþættum vanda. Í fyrsta lagi fái ráðuneytið ekki nægar upplýsingar til að geta metið hvort samræma þurfi framkvæmd skattamála. Í öðru lagi snerti þetta eftirlitshlutverk ráðuneytisins með stjórnsýslunni og í þriðja lagi frumkvæði þess að breytingum á lögum og reglum.
Þá liggur einnig fyrir að ráðuneytið hefur ekki kallað eftir öllum þeim skýrslum og upplýsingum, sem lögboðið er að önnur stjórnvöld gefi um starfsemi sína þrátt fyrir að mikill misbrestur hafi verið á að þær hafi verið sendar ráðuneytinu. Nefndin er því þeirrar skoðunar að það skorti á að ráðuneytið hafi sinnt því hlutverki að tryggja að stjórnsýslan sé lögmæt, réttmæt og samræmd auk þess sem það veldur vafa hvort það hafi almennt nægar upp lýsingar til að bregðast við breytt um aðstæðum á þessu sviði.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð .