Yngvi Guðmundsson vélaverkfræðingur hefur verið ráðinn til starfa sem verkfræðingur í tækniþjónustu HS Orku. Helstu verkefni hans verða verkefnastjórnun við nýframkvæmdir, endurbætur og viðhaldsverkefni í orkuverum og þróun nýrrar tækni á sviði jarðvarma.

Yngvi er sagður í fréttatilkynningu frá félaginu hafa víðtæka reynslu af hönnun og undirbúningi virkjanaframkvæmda. Sérsvið hans eru vélbúnaður, varma- og straumfræði. Hann hefur unnið hjá Verkís undanfarin ár, auk þess að kenna í meistaranámi í HÍ og Jarðhitaskóla

Yngvi er með B.Sc gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc frá Stellenbosch University, Western Cape, S-Afríka.
Yngvi er fæddur. 8.  ágúst 1984, hann er giftur Sigrúnu Melax og eiga þau þrjár dætur.