1. september 2010, 10:00 - Kippur hefur verið í sæðingum og fósturvísaflutningum milli hryssna á Suðurlandi í sumar. Guðmar Aubertsson, dýralæknir á Sandhólaferju, hefur sætt nokkra tugi hryssna og það stefnir í að 20-30 fósturvísaflutningar verði framkvæmdir áður en tímabilinu lýkur. Honum til aðstoðar er þýskur sérfræðingur á sviði tæknifrjóvgana, Petra Koblinski. Fósturvísaflutningar hafa verið framkvæmdir á Hólum í Hjaltadal í allmörg ár og Höskuldur Jensson, dýralæknir á Nautabúi í Skagafirði, hefur framkvæmt 8-10 slíka í sumar.
30. ágúst 2010, 11:36 - Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum á Sörlastöðum var gott. Umgjörð mótsins og framkvæmd er Sörlafélögum til mikils sóma. Ekki spillti fyrir blíðskaparveður alla mótsdagana.
27. ágúst 2010, 11:42 - Sigurbjörn Bárðarson er Íslandsmeistari í gæðingaskeiði á Flosa frá Keldudal. Sigurbjörn er elsti knapi mótsins, 58 ára. Flosi er ekki foli heldur, 15 vetra. Hefur verið í fremstu röð skeiðhesta í nær áratug. Þeir fengu frábærar einkunnir, 8,50 fyrir fyrri sprett og 8,52 fyrir seinni.
27. ágúst 2010, 11:25 - Áhyggjur þeirra sem óttast að fjórgangshesturinn sé í útrýmingarhættu eru ástæðulausar samkvæmt einkunnum í forkeppni í fjórgangi á Íslandsmótinu á Sörlastöðum. Fjörutíu og sjö keppendur eru með 6,0 í einkunn og hærra.
26. ágúst 2010, 11:16 - Tveir synir stólpahryssunnar Pyttlu frá Flekkudal eru í úrslitum í fimmgangi á Íslandsmóti fullorðinna, sem nú fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Það eru stóðhestarnir Glymur 7 vetra (8,52), undan Keili frá Miðsitju, og Frægur 8 vetra (8,04), undan Gusti frá Hóli.
26. ágúst 2010, 10:43 - Fimmgangarar í hesta-íþróttakeppni hafa líklega aldrei verið betri en um þessar mundir. Í B úrslitum á Íslandsmóti fullorðinna, sem nú fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði, eru Íslands- Meistaradeildar- og Norðurlandsmeistarar í greininni. Ótrúlegt en satt.
25. ágúst 2010, 09:51 - Katrín Sigurðardóttir á Skeiðvöllum sagði í viðtali í Eiðfaxa fyrir tólf árum að konur væru betri knapar. Mýkri og umburðarlyndari. Enga hörku þurfi til að láta hross skeiða. Nú eru margar konur komnar í fremstu röð í keppni og sýningum.
25. ágúst 2010, 09:40 - Jónas Kristjánsson, ritstjóri, er í viðtali í blaðinu Hestar og hestamenn, sem kemur út á morgun, fimmtudag. Þar segir Jónas frá Reiðleiðakorti sínu, þar sem hann hefur varðað átta hundruð leiðir með GPS punktum.
19. ágúst 2010, 15:08 - Ítarlegar rannsóknir hafa nú leitt í ljós að smitandi hósti í hrossum stafar fyrst og fremst af bakteríusýkingu (Streptococcus zooepidemicus) í efri hluta öndunarfæranna, barka og jafnvel berkjum. Allur hrossastofninn hefur reynst næmur fyrir sýkingunni og ætla má að flest hross landsins hafi nú þegar smitast.
18. ágúst 2010, 13:09 - Hugsanlegt er að hestamenn standi frammi fyrir nýjum veruleika og að hestahald hér á landi verði eftirleiðis með allt öðrum hætti en verið hefur. Í bígerð er að gefa út leiðbeiningar og reglur um hestahald í þéttbýli og á hrossabúum, sem fela í sér meiri aðskilnað hrossa.
13. ágúst 2010, 16:09 - Fréttatilkynning um útflutning hrossa 13.08.2010 Stefnt er að því að útflutningur hrossa hefjist á ný 15. september nk eftir fjögurra mánaða hlé vegna faraldurs smitandi hósta. Enn ber nokkuð á veikinni víða um land og hefur smitið m.a.
13. ágúst 2010, 14:35 - Landsmót 2010 verður haldið á Vindheimamelum fyrstu vikuna í júlí á næsta ári, 2011. Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf., segir að ekki sé um að ræða Landsmót 2011, heldur sé aðeins verið að fylgja áður tekinni stefnu.
13. ágúst 2010, 14:33 - Landssamband hestamanna, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna munu funda með dýralæknum og sérfræðingum í veirusjúkdómum næstkomandi þriðjudag, 17. ágúst.
12. ágúst 2010, 09:21 - Opið stórmót hestamanna verður haldið á Melgerðismelum 21.-22. ágúst. Keppt verður í A- og B-flokki, polla-, barna- unglinga- og ungmennaflokki og verður forkeppnin með þrjá inni á vellinum í einu.
11. ágúst 2010, 14:38 - Gert er ráð fyrir að útflutningur hrossa hefjist að nýju fimmtánda september eftir nokkurra mánaða hlé, sem varð vegna hrossapestarinnar. Allmörg hross hafa verið seld til útlanda í sumar og bíða útflutnings. Fyrsta vélin verður til Liege í Belgíu og er gert ráð fyrir að um 30 hross fari með henni.
11. ágúst 2010, 14:33 - Talsvert hefur borið á því í sumar að folöld veikist all hastarlega af hrossapestinni í stóðhestagirðingum. Svo virðist sem aukið smitálag skapist þar sem margar hryssur eru í hólfum.
11. ágúst 2010, 10:35 - Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur, hefur fyrir hönd fagráðs í hrossarækt sent frá sér tilkynningu, sem birtist á vef Félags hrossabænda.
10. ágúst 2010, 10:12 - Árangur Íslendinga á Norðurlandamótinu í hestaíþróttum hefur sjaldan eða aldrei verið lakari en á NM2010 í Finnlandi, sem haldið var í liðinni viku. Ekkert gull kom í hlut landans, eitt silfur í ungmennaflokki og reitingur af bronsi. Enginn vafi er á að hrossapestin setti strik í reikninginn.
6. ágúst 2010, 13:34 - Allir kynbótadómar ársins eru ólöglegir samkvæmt strangasta lagabókstaf. Einnig fyrirhuguð kynbótasýning á Hellu þar sem gera á tilraun með kynbótadóma á hringvelli að hluta. Einnig Náttfaravöllurinn á Melgerðismelum og þar með allir dómar á honum.
4. ágúst 2010, 10:27 - Tveir hestar í íslenska landsliðinu og þrír í danska liðinu á NM2010 í Finnlandi eru veikir. Hestarnir greindust með hita þegar þeir komu á mótsstað og voru settir í einangrun.
3. ágúst 2010, 13:30 - Gæðingar í A og B flokki á opnu Stórmóti Geysis um verslunarmannahelgina voru góðir. Heljar frá Hemlu og Klerkur frá Bjarnanesi voru með afgerandi forystu hvor í sínum flokki. Heljar alhliða gæðingur en Klerkur klárhestur með tölti.
29. júlí 2010, 16:03 - Eyjólfur Þorsteinsson er með tvö efstu hross í B flokki gæðinga á Stórmóti Geysis eftir forkeppni. Efstur er stóðhesturinn Klerkur frá Bjarnanesi (8,61), sem er undan hinum miklu klárhrossum Snældu frá Bjarnanesi og Glampa frá Vatnsleysu.
29. júlí 2010, 14:59 - Fákaflug á Vindheimamelum hefst í fyrramálið, föstudag klukkan 09.00, með yfirlitssýningu kynbótahrossa. Um 100 kynbótahross voru fordæmd nú í vikunni. Góð þáttaka er í A og B flokki gæðinga, fimmtíu hross í hvorum flokki. Þrjátíu keppendur taka þátt í töltkeppni.
28. júlí 2010, 11:29 - Konungur stóðhestanna, Orri frá Þúfu, er ennþá traustur í sessi. Hann á flest afkvæmi í gæðingakeppni og tölti á Stórmóti Geysis, sem heldið verður um verslunarmannahelgina á Gaddstaðaflötum við Hellu. Synir hans koma næstir honum sem feður.
28. júlí 2010, 11:05 - Hestamennskan er að vakna úr dróma. Földi hestamóta er auglýstur á næstu vikum. Tvö stór mót verða haldin um verslunarmannahelgina, á Vindheimamelum í Skagafirði og á Gaddstaðaflötum við Hellu.
26. júlí 2010, 14:15 - Birta frá Mið-Fossum er hæst dæmda 5 vetra kynbótahryssa ársins hér á landi. Hún fékk 8,40 í aðaleinkunn á seinni kynbótasýningu í Víðidal. Hún er með 8,41 sköpulag og 8,39 fyrir kosti. Í aðaleinkunn 8,40.
26. júlí 2010, 14:12 - Stóðhesturinn Kiljan frá Steinnesi er hæst dæmdi stóðhestur ársins það sem af er. Hann var sýndur í Víðidal í vor, fékk 8,71 í aðaleinkunn og er þar með kominn í hóp hæst dæmdu stóðhesta. Hann er úrval, bæði að gerð og kostum.
26. júlí 2010, 14:01 - Hinn fjögra vetra Hrannar frá Flugumýri II er spennandi stóðhestur. Hann er undan Krafti frá Bringu, Gustssyni frá Hóli, og Hendingu frá Flugumýri. Hrannar er með úrvalseinkunn fyrir sköpulag, 8,35, þar af 9,0 fyrir samræmi.
26. júlí 2010, 13:48 - Hnokki frá Dýrfinnustöðum er nýr fulltrúi Steðjaættarinnar úr Flókadal. Hann hlaut fyrstu verðlaun á Vindheimamelum á dögunum, 7,94 fyrir sköpulag, 8,23 fyrir kosti og 8,12 í aðaleinkunn. Hann er jafngóður alhliðahestur með 8,5 fyrir tölt, skeið, vilja og fegurð.
26. júlí 2010, 13:42 - Tveir bráðgóðir stóðhestar undan Arði frá Brautarholti komu fram á Vindheimmelum og fengu báðir góð fyrstu verðlaun. Fyrsta athyglisverða afkvæmi Arðs frá Brautarholti sem kom til dóms var hins vegar Díva frá Álfhólum.