Afkoma hins opinbera á síðasta ári eins og þau birtast í tölum Hagstofunnar vekja mönnum ugg í brjósti og ljóst að fjárlagagerð næsta árs verður gríðarlega erfið.
Óðinn hefur alla tíð verið áhugasamur um starfsemi tryggingafélaga. Tryggingastarfsemi af einhverjum toga er nánast jafngömul mannkyninu og fjallar í grófum dráttum um samábyrgð þegar vá ber að...
Fyrir tæpu ári, hinn 9. apríl 2009, birtist forsíðufrétt í Fréttablaðinu þar sem sagt var að feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor skulduðu Nýja Kaupþingi um 5...
"Við erum búnir að ganga því máli öllu [hlutafjáraukningunni innsk. blm.], eins og við höfum greint frá áður. Við munum ekki skýra nánar frá því fyrr en þar að kemur," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, sem m.a. á Fréttablaðið, Stöð 2 og Bylgjuna. Auka þarf hlutafé í félaginu um einn milljarð króna fyrir 1. Meira
Samkvæmt upplýsingum úr vinnugögnum í iðnaðarráðuneytinu, sem Viðskiptablaðið óskaði eftir frá Skúla Helgasyni þingmanni eftir greinaskrif hans um atvinnumál á vefsíðunni Pressan.is, hafa 2.392 störf þegar orðið til vegna sértækra aðgerða stjórnvalda í atvinnumálum. Meira
Það var þungur tónn í verktökum á Útboðsþingi sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir á fimmtudag og ljóst að fátt er um fína drætti á útboðsmarkaði. Meira
Flugvélaframleiðandinn Cessna afhenti á dögunum níu þúsundustu einshreyfils flugvélina með sprengihreyfli sem fyrirtækið hefur framleitt í verksmiðju sinni í Independence í Kansas í Bandaríkjunum. Fyrsta einshreyfilsvélin sem Independence verksmiðjan framleiddi kom af framleiðslubandinu í nóvember 1996. Meira
Að undanförnu hafa staðið yfir veiðar á kræklingi í Hvalfirði með sérhönnuðum kræklingaplóg. Aflinn er fluttur norður til Hríseyjar þar sem kræklingurinn er ræktaður áfram þar til hann er söluhæfur á Evrópumarkað. Meira
Jenný Ruth Hrafnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Barnasmiðjunnar ehf. Jenný er vélaverkfræðingur, menntuð á Íslandi og í Þýskalandi, auk þess að búa yfir 5 ára reynslu í vöruþróun og vörustjórnun hjá Össuri haf. Meira
Hátt í 5.000 tölvur tengdust beinni útsendingu og upptöku af því þegar hreindýraveiðileyfi voru dregin út hjá Umhverfisstofnun um helgina. Um 2.700 manns horfðu á beina útsendingu frá útdrættinum og um 2.000 horfðu á upptöku af fundinum að því er segir í tilkynningu frá Nýherja. Meira