Netverslun í heiminum eykst jafnt og þétt. Á síðasta ári má búast við að sala á netinu hafi verið um 11,9% af heildarveltu smásöluverslunar. Á sama tíma er spáð að sala í hefðbundinni verslun hafi dregist saman um 1,7% sem sýnir að markaðshlutdeild smásöluaðila á netinu eykst á kostnað hefðbundinnar smásölu. Myndin dregur þetta vel fram, hún sýnir hlutfall netverslunar í alþjóðlegri smásölu á síðastliðnum árum og spá sérfræðinga um þróunina til 2021.

Samruni stafrænnar tækni og hefðbundinnar verslunar

Þrátt fyrir öran vöxt netverslunar fer enn stærsti hluti smásöluverslunar fram í hefðbundnum verslunum. Þá eru skilin milli net- og hefðbundinnar verslunar að verða óljósari; hefðbundin verslun beitir netlausnum og netfyrirtæki beita hefðbundnum aðferðum. Sem dæmi má nefna að í nýlegri könnun um netinnkaup Íslendinga kemur fram að 61% svarenda skoðar vörur fyrst á netinu áður en þær eru keyptar í hefðbundinni verslun.

Samþætting hefðbundinna lausna og netlausna er lykilþáttur óháð því hvort verslunin skilgreinir sig sem netverslun eða hefðbundna verslun. Þegar horft er til þróunar í stafrænni umbyltingu verslunar, bendir margt til að ákveðin tækifæri séu til staðar að flétta saman stafræna tækni og hefðbundna verslun og nauðsynlegt er að líta á samskipti viðskiptavinarins í heild, burtséð frá því hvar þau fara fram.

Breytt neytendahegðun skapar sannarlega ný tækifæri. Með því að tengja saman nýja tækni og hefðbundna verslun er hægt að bjóða upp á sérsniðna þjónustu í rauntíma. Góð þjónusta hefur enn mikið um það að segja hvar fólk verslar og gæði þjónustunnar geta bætt upplifunina af viðskiptunum og virði vörunnar.

Netverslun á mikið inni

Mikill uppgangur netverslunar og breytt neysluhegðun aldamótakynslóðarinnar er að umbylta umhverfi verslunarinnar og felur í sér ögrandi verkefni fyrir alla sem starfa við verslun og þjónustu. Reglulega berast okkur fréttir af rótgrónum fyrirtækjum sem hafa lagt upp laupana m.a. vegna tregðu fyrirtækja við að setja á fót netverslun eða nýta samruna stafrænnar tækni og hefðbundinnar verslunar. Verslanir verða að aðlaga virðiskeðju sína að neysluvenjum aldamótakynslóðarinnar og nýta sér kosti þessarar þróunar meðan á henni stendur í stað þess að standa frammi fyrir orðnum hlut síðar.

Samkvæmt nýútkominni skýrslu Rannsóknarsetur verslunarinnar: „Íslensk netverslun – áhrif stafrænnar tækni og alþjóðlegrar samkeppni“ voru kaup Íslendinga um netið um 2,9% af heildarveltu íslenskrar verslunar á meðan algengt er að netverslun í nágrannalöndum okkar nemi um 10% af heildarveltu. Hlutfallið er nokkuð lágt í samanburði við nágrannaþjóðir okkar en fer þó ört hækkandi, t.a.m. jókst innlenda kortavelta Íslendinga í netverslun í nóvember 2018 um 15% frá sama mánuði í fyrra en velta innlendra greiðslukorta Íslendinga í verslun jókst um 5% á sama tímabili.

Gegnsæ verð og aukin samkeppni

Aukin notkun stafrænna viðskipta hefur í för með sér harðari samkeppni og lægra verð fyrir neytendur. Neytendur eru betur upplýstir bæði hvað varðar verð, eiginleika vöru og gæði og hafa meira val fyrir tilstilli netverslunar. Það að neytendur geti valið þá vöru sem fæst á hagstæðustu kjörum hvar sem verslunin er staðsett, hvort sem það sé innanlands eða í öðru landi leiðir til aukinnar samkeppni.

Þegar til lengri tíma er litið mun þessi losun átthagafjötra skapa tækifæri fyrir verslanir til að lækka kostnað og auka framleiðni án þess að hækka verð m.a. vegna þess að samkeppnin við alþjóðlegar verslanakeðjur verður áþreifanlegri og þvingar verslanafyrirtæki til að bregðast við breyttu umhverfi með því að nýta innviði betur og skynsamlegar en ella hefði orðið. Störf í verslun eru sömuleiðis fjölbreyttari í dag og vaxandi eftirspurn er eftir starfsfólki með bæði góða félagslega og tæknilega færni svo það geti leiðbeint viðskiptavinunum í gegnum þá möguleika sem tækni býður upp á. Betur menntað starfsfólk og skilvirkari rekstur skilar betur reknum fyrirtækjum og lægra vöruverði til neytenda.

Að duga eða drepast í alþjóðlegri samkeppni

Á Norðurlöndum er umfang netverslunar einna hæst í Svíþjóð en samkvæmt nýlegri könnun PostNord höfðu um 66% sænskra neytenda verslað á netinu a.m.k. einu sinni í mánuði. Þrátt fyrir að Svíar kjósi í meira mæli að beina viðskiptum sínum að netverslun, kaupa Svíar í auknum mæli vörur af innlendum aðilum á meðan Finnar hafa hæst hlutfall viðskipta við erlenda netverslun.

Ástæðan er m.a. sú að fjöldi sænskra netverslana starfar í hagstæðu og samkeppnishæfu viðskiptaumhverfi. Sænsk netverslun nær að skapa sér hagstæða stöðu á þessu sviði, aðallega á grundvelli fjölbreytts vöruúrvals og með því að bjóða upp á notendavænar vefsíður. Mikilvægt er að læra af reynslu Svía og útfæra svipaðar lausnir hér á landi m.t.t. hagsmuna neytenda.

Það er mikilvægt og nauðsynlegt að íslensk fyrirtæki nýti sér stafræna tækni áður en erlendir keppinautar stíga inn á markaðinn með betri tilboð. Aukin hnattvæðing þar sem samkeppnin um neytandann er hörð skapar jafnframt ný tækifæri. Til að mæta nýrri þróun er vaxandi þörf fyrir tæknimenntaða starfsmenn í verslun, ekki síst til að sameina vöruþekkingu og upplýsingamiðlun á stafrænu formi.

Það er jafnframt mikilvægt að annað fagfólk í verslun geti aðlagast breyttum forsendum og nýtt sér tækifærin í heimi stafrænna lausna í verslun. Breytingar í rekstrarumhverfi í verslun og þjónustu kallar á breytta hugsun og breytt vinnubrögð innan menntakerfisins svo búa megi starfsfólk framtíðarinnar undir nýjan veruleika.

Höfundur er aðalhagfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu.