Sú undarlega söguskýring hefur farið á flot að Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra hafi aldrei mætt á viðskiptaþing. Var t.d. ekki annað að heyra á Bjarna Benediktssyni á Alþingi fimmtudaginn 14. febrúar sl. Úr því minni Bjarna er ekki betra en þetta þá er ekki von nema minni spámönnum og þeim sem alls ekki hafa sótt samkomurnar verði á að trúa vitleysunni.
Hið rétta er að Jóhanna Sigurðardóttir var sem forsætisráðherra ræðumaður á Viðskiptaþingi árin 2009, 2010 og 2011. Árið 2012 sá Jóhanna sér ekki fært að mæta. Aðstandendur þingsins kusu að gera fjarveru hennar að sérstöku umtalsefni í stað þess að taka forföll hennar gild eða leyta eftir staðgengli í hennar stað. Ég sótti þingið það ár eins og oftast þegar ég hef við komið. Ég spurði forráðamenn Viðskiptaráðs af hverju þeir hefðu þá ekki leitað til mín sem staðgengils eða vara forsætisráðherra, í stað þess að blása fjarveruna út? Þeim sem eitthvað höfðu fylgst með mátti þá vera orðið sæmilega ljóst að ég gegndi jafnan störfum forsætisráðherra í fjarveru eða forföllum Jóhönnu og eins og um var samið milli stjórnarflokkanna. Fátt varð um svör.
Ekki kann ég skýringar á því hvernig dagskrá og ræðumannalisti Viðskiptaþings árið 2013 varð til. Þá voru aðstæður reyndar orðnar þær að stutt var í kosningar og eitt aðalefni fundarins voru hringborðsumræður formanna allra stjórnmálaflokka. Eins lá fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir var að láta af þátttöku í stjórnmálum. Hvort þetta hafði áhrif á að Jóhanna var ekki meðal ræðumanna, hvort henni var ekki boðið eða að hún þekktist ekki boð eftir trakteringarnar árið á undan þekki ég ekki. Viðskiptaþing á dögunum skartaði hins vegar ræðu núverandi forsætisráðherra og það var eins og það var en er önnur saga.