Undanfarin ár hafa vinsældir utanvega- og náttúruhlaups aukist mikið hér á landi. Til marks um það tvöfaldaðist fjöldi keppenda í helstu utanvegahlaupum á milli áranna 2019 og 2021. Einn af þeim sem kolféll fyrir slíkum hlaupum er Ólafur Heiðar Helgason og nú hefur hann sent frá sér sína fyrstu bók, Hlaupahringir á Íslandi, sem Salka gefur út.

Hlaupahringir á Íslandi er fróðleg og gagnleg bók fyrir alla sem hafa ánægju af útivist. Í henni má finna vandaðar lýsingar á 36 hlaupaleiðum um allt land fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Fjallað er um bæði aðgengilegar leiðir nálægt þéttbýli og stórbrotnar utanvega- og náttúruleiðir sem opna hlaupurum og lesendum bókarinnar ný sjónarhorn á Ísland.

Hlaupahringirnir eru fjölbreyttir og liggja um fjöll, öræfi, sveitir, skóga og strendur. Leiðarlýsingar eru sérsniðnar að þörfum hlaupara og þeim fylgja fjöldi ljósmynda, vönduð kort og GPS-ferlar sem gera bókina einkar notadrjúga.

Ólafur Heiðar Helgason hefur áralanga reynslu af hlaupum og útivist og yfirgripsmikla þekkingu á íslenskri náttúru og staðháttum auk þess sem sögulegur fróðleikur er víða kærkomin viðbót við nákvæmar leiðarlýsingar.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar var blásið til útgáfufagnaðarhlaups en í því hlupu höfundur og útgefendur í fulltingi við um 50 hressa utanvegahlaupara í kringum Helgafell og Valahnúka.