Reykjavík - glæpasaga kemur út 25. október. Bókin er eftir Ragnar Jónasson rithöfund og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Ragnar segir stuttlega frá bókinni í kvöld á Facebook.

Í ágúst 1956 hverfur ung stúlka, Lára Marteinsdóttir, úr vist í Viðey. Eftir það spyrst ekkert til hennar. Áratugum saman hvílir mál Láru þungt á íslensku þjóðinni, það er reglulega rifjað upp í fjölmiðlum án þess að nokkuð komi fram sem skýri örlög hennar.

Í ágúst 1986 fer hins vegar ungur blaðamaður á Vikublaðinu að grafast fyrir um þetta dularfulla mannshvarf – með ófyrirséðum afleiðingum.

Í sögunni ætlum við Katrín Jakobsdóttir að bjóða lesendum í ferðalag á vit sumarsins þegar Reykjavík átti 200 ára afmæli, Bylgjan og Stöð 2 voru að fara í loftið og leiðtogafundur Reagans og Gorbatjovs stóð fyrir dyrum. Og þetta sumar komu líka fram óvæntar vísbendingar um afdrif Láru Marteinsdóttur.