Kvikmyndin Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Myndin fer í sýningar á sama degi og James Bond en A24, dreifingaraðili Dýrsins í Bandaríkjunum, telur að myndin fái góða aðsókn og höfði til yngri hóps áhorfenda í Bandaríkjunum en þeirra sem sækja Bond myndirnar.

„Við vitum að kvikmyndin Dýrið er einstök perla, aðgengileg, sorgleg og fyndin. Viðbrögðin á forsýningum hafa staðfest það og yfir tíu milljónir hafa horft á kynningarstikluna. Myndin hefur alla burði til að slá í gegn hér í Bandaríkjunum og við erum ofboðslega spennt fyrir því að frumsýna hana svona stórt,” segir David Laub, framkvæmdastjóri dreifingarmála hjá A24.

Dýrið er til sýninga í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíó Akureyri.