Hlíðarás 26 var dýrasta einbýlishús sem selt var í Hafnarfirði á síðasta ári. Kaupverð hússins, sem er 356 fermetrar, nam 200 milljónum króna. Fermetraverð nam því 561 þúsund krónum.

Hæsta fermetraverð sem greitt var fyrir einbýlishús í sveitarfélaginu var 727 þúsund krónur, en það var fyrir Tjarnarbraut 7. Kaupverð hússins, sem er 248 fermetrar, nam því 180 milljónum króna.

Hér að neðan má sjá lista yfir fimm dýrustu einbýlishús sem seld voru í Hafnarfirði í fyrra.

Dýrustu einbýlishús sem seldust í Hafnarfirði árið 2022

Heimilisfang Verð (milljónir kr.) Stærð Fermetraverð (þúsundir kr.)
Hlíðarás 26 200 356 561
Víkurskarð 3 195 335 581
Tjarnarbraut 7 180 248 727
Fjóluás 16 175 286 611
Burknaberg 8 165 327 505
Heimild: HMS

Umfjöllunina má lesa í heild í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.