Nýtt keppnistímabil hefst í Formúlu 1 um helgina. Max Verstappen hefur titilvörn sína og Kevin Magnussen snýr aftur til liðs við Haas liðið. Formúlu 1 kappaksturinn í Barein hefst með æfingum á dag föstudag, tímatöku á morgun laugardag og kappaksturinn sjálfur er síðan á sunnudaginn.

Fyrsta áskorunin fyrir Magnussen og félaga hans verður kappaksturinn í Barein, þar sem Daninn náði fimmta sæti með með góðum akstri árið 2018. Magnussen náði hraðasta hringnum á síðasta prufudeginum í síðustu viku og því ljóst að fyrsti kappaksturinn á tímabilinu verður áhugaverður. Lewis Hamilton og Max Verstappen háðu dramatíska titilbaráttu á síðasta ári, sem endaði með sigri Hollendingsins.

Formúluáhugafólk getur hitað upp fyrir helgina með því að horfa á þáttinn Verstappen - Master of the Track sem frumsýndur er á Viaplay í dag. Í þættinum fá áhorfendur að skyggnast bakvið tjöldin og fylgjast með Max Verstappen greina allar Formúlu 1 brautirnar 22.

„Það var mjög gaman að fara í gegnum brautirnar í herminum í höfuðstöðvum Redline-liðsins. Með því að fylgjast mér keyra í gegnum hverja braut geta áhorfendur lært meira um brautirnar og verið betur undirbúnir fyrir keppnishelgina," er haft eftir Max Verstappen í tilkynningu frá Viaplay. Hann vonast til að allir muni stilla á Formúluna á tímabilinu.