Forsala er hafin á nýjum EQE SUV frá Mercedes-EQ. Nýr EQE SUV er 100% rafmagnaður lúxusjeppi með allt að 550 kílómetra drægi og 170 kW hraðhleðslugetu.

Þetta er fyrsti 100% rafmagnaði lúxusjeppinn frá Mercedes sem einnig mun verða í boði frá Mercedes-AMG. EQE SUV er með öflugt fjórhjóladrif og ríkulegan staðalbúnað.

Innanrými EQE SUV er eitt það besta sem finnst í bíl í þessum stærðarflokki og inniheldur nýstárlegan þægindabúnað sem gerir aksturupplifunina einstaka. Í innanrýminu, sem er hlaðið þægindum og lúxus, er MBUX hágæða margmiðlunarkerfi og fyrsta flokks hljómgæði með Burmester 3D hljóðkerfi.

EQE SUV er stór og stæðilegur lúxusjeppi og það er mikið pláss fyrir fólk og farangur. Farangursými bílsins er allt að 1686 lítrar.

Nýr EQE SUV er enn einn áfangi Mercedes-Benz í rafbílavæðingu framleiðandans, en Mercedes-Benz hefur gefið út að árið 2030 muni allur bílafloti vörumerkisins vera framleiddur kolefnishlutlaus og samanstanda einungis af rafmagnsbílum.

EQE SUV er í senn bæði sportlegur og fágaður og er fjölhæfasti rafmagnsbíll í vöruframboði Mercedes-EQ. Hann er byggður á sameiginlegum EVA 2.0 undirvagni sem einnig má finna í EQS og EQE fólksbílunum.
EQE SUV frá Mercedes-AMG verður einnig fáanlegur á Íslandi. Tveir öflugir rafmótorar og fjölhæft fjórhjóladrif er grundvöllur framúrskarandi akstursupplifunar bílsins sem fylgir jafnan AMG útgáfu.

Sérfræðingar í þróunardeild Mercedes-AMG hafa sett sitt eigið mark á fjölda þátta í bílnum, þar má meðal annars nefna hönnun bílsins bæði að innan og að utan, fjöðrunarkerfi með stýringu á afturás sem er staðalbúnaður og öflugt AMG SOUND EXPERIENCE hljómkerfið sem gerir aksturinn að upplifun fyrir öll skilningarvitin.

Áætluð koma EQE SUV til Íslands er um mitt sumar 2023.