Fjórhjóladrifni og rafknúni jepplingurinn Solterra frá Subaru verður frumsýndur hjá BL á morgun, laugardag. Solterra markar þáttaskil í sögu Subaru því þessi aldrifni jepplingur er sá fyrsti í sögu fyrirtækisins sem boðinn er í 100% rafdrifinni útgáfu.

Solterra er vel búinn fimm manna fjölskyldubíll með 80 kW rafmótor við hvorn öxul sem skila saman 218 hestöflum og335 Nm togi og er hröðun bílsins 7,6 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Rafhlaðan í undirvagninum er 71 kWh og skilar hún allt að 466 km drægi sem gerir ferðalög milli flestra landshluta fyrirhafnarlaus og þægileg við venjubundnar aðstæður.

Solterra er með 7" upplýsingaskjá í mælaborði og rúmlega 12 tommu miðlægan snertiskjá fremst á miðjustokkinum milli framsætanna. Á honum eru stjórntakkar fyrir allar helstu aðgerðir, s.s. afþreyingu og leiðsögukerfi með Íslandskorti svo nokkuð sé nefnt.

Þá er farþegarýmið einnig búið sex hátalara hljóðkerfi í grunngerðinni og 11 í dýrari útfærslum sem auk þess eru búnar Harman Kardon hljóðkerfi. Þá er Solterra búinn tveggja svæða miðstöð og ýmsum hleðslumöguleikum.