Sænska tískufatakeðjan Gina Tricot stefnir að því að opna nýjar verslanir á Íslandi á þessu ári í gegnum umboðssamning. Ný netverslun ginatricot.is opnar 17. mars og fyrirhuguð verslun undir merkjum fyrirtækisins í haust en viðræður um hana eru nú langt komnar, að því er kemur fram í tilkynningu.

Gina Tricot rekur um 150 verslanir í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi. Ísland bætist nú bráðlega í hópinn í kjölfar umboðssamnings við Lóu D. Kristjánsdóttur og Albert Þór Magnússon sem hafa rekið Lindex vörumerkið hér á landi í yfir áratug.

„Þegar tækifæri bauðst að gefa Íslendingum möguleika á að upplifa tískuvörumerkið Gina Tricot urðum við strax áhugasöm og hefur það verið sérlega ánægjulegt að undirbúa komu Gina Tricot til Íslands. Við erum full tilhlökkunar til framtíðarinnar hér á Íslandi!,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Gina Tricot á Íslandi.

Gina Tricot býður konum upp á tískufatnað og fylgihluti sem og fatnað á stúlkur í stærðum 134-164.

Hluti vörulínu Gina Tricot hefur verið aðgengileg í gegnum vefsíðu noomi.is frá árinu 2019. Hinn nýi samningur er sagður tryggja að vörumerki Gina Tricot verði nú að fullu gerð skil með netverslun sem opnar um miðjan mars og verslun sem opnar síðar á árinu með heildarvörulínu Gina Tricot.

Árið 2019 byrjaði Gina Tricot að bjóða upp á þjónustuna RENT í ákveðnum verslunum þar sem viðskiptavinir gátu leigt sína uppáhaldsflík. Fyrirtækið segir að þessi þjónusta stuðli að hámörkun notkunar flíkna og endurnýtingu.

„Við erum stöðugt að leitast við að bæta okkur og verða betri með sjálfbærum hætti. Uppbygging Gina Tricot hefur leitt til þess að nú er Ísland að bætast við sem fyrir okkur er afar spennnandi. Í samvinnu við okkar umboðsaðila erum við himinlifandi að opna dyr Gina Tricot fyrir okkar viðskiptavini á Íslandi,“ segir Ted Boman, forstjóri Gina Tricot AB.