Iceland Airwaves verður í ár haldin í samstarfi við markaðsráðstefnuna Sahara Festival sem fram fer samhliða tónlistarhátíðinni í byrjun nóvember. Sahara Festival er ráðstefna um stafræna markaðssetningu sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra á vegum auglýsingastofunnar Sahara, en þá voru fyrirlesarar frá fyrirtækjum eins og Nike, TikTok, Smirnoff og Spotify. Greint er frá þessu í tilkynningu.

Miðinn gildir á tónleika Airwaves

„Það gekk rosa vel í fyrra, við náðum að fylla Gamla Bíó, meira en 300 manns, þrátt fyrir ýmsar leiðinlegar takmarkanir, eins og þurfa að krefja alla gesti um neikvæð covid-hraðpróf,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri Sahara um ráðstefnuna í fyrra. „Það var alltaf planið að tengja þessa viðburði saman, en svo þurfti náttúrulega að aflýsa Airwaves í fyrra.“

Davíð býst við talsvert fleiri gestum í ár og ráðstefnan verður því haldin í Silfurbergssal Hörpu 3. nóvember, auk þess sem haldin verður vinnustofa og lokahóf á KEX Hostel. Þá er von er á enn fleiri fyrirlesurum frá leiðandi risum í bransanum, en tilkynnt verður um á þá næstu vikum.

„Við viljum líka hafa stemminguna á Sahara Festival létta og í hátíðaranda, þannig þetta smellpassar alveg. Miðinn á ráðstefnuna veitir líka aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar.“

Frá Sahara Festival í fyrra.
Frá Sahara Festival í fyrra.

Erlendar fyrirmyndir

Iceland Airwaves tónlistarhátíðin fór síðast fram árið 2019 en hún féll niður síðustu tvö ár vegna heimsfaraldursins. Ísleifur Þórhallsson framkvæmdastjóri hátíðarinnar segist spenntur fyrir samstarfinu við Sahara Festival.

„Þetta kom mjög vel út hjá þeim í fyrra. Nú þegar markaðurinn fyrir upptekna tónlist hefur færst nær alfarið yfir á streymisveitur og aðra stafræna vettvanga, skiptir markaðssetning í gegn um net- og samfélagsmiðla sífellt meira máli, fyrir tónlistarmenn og útgáfur til að koma sér á framfæri.“

Löng hefð sé líka fyrir svipuðu samstarfi erlendis frá. „Við horfum til hátíða eins og South By Southwest í Austin í Texas, þar sem eru bransaráðstefnur og fyrirlestrar yfir daginn, og svo partýstuð og tónleikar á kvöldin,“ segir Ísleifur, en Iceland Airwaves verður einnig með sína eigin ráðstefnu 4. nóvember, daginn eftir Sahara Festival, þar sem stiklað verður á stóru í alþjóðlega tónlistar- og tónleikageiranum.

Meðal helstu listamanna sem hafa verið bókaðir á Iceland Airwaves í ár eru HAM, Metronomy, Reykjavíkurdætur, Gugusar og Flott.