ID Buzz Cargo fékk þessi eftirsóttu alþjóðlegu verðlaun þótt hann væri ekki enn kominn á markað. Hann var þróaður eingöngu fyrir rafhlöðuknúna flutninga og verður afhentur viðskiptavinum algjörlega kolefnisjafnaður.

ID Buzz Cargo er 150 kW og rafhlaðan skilar bílnum alls 204 hestöflum. „Þetta er okkur mikill heiður og við erum stolt að fá þessi verðlaun fyrir ID. Buzz Cargo. Við viljum þakka öllum í IVOTY-dómnefndinni sem og öllum hjá Volkswagenatvinnubílum sem áttu þátt í að gera ID Buzz Cargo að besta sendibílnum í sínum flokki,“ sagði Carsten Intra, forstjóri WWCW, þegar hann tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn.

Meira en 13.700 ID Buzz pantaðir

Jarlath Sweeney, stjórnarformaður IVOTY, afhenti verðlaunin fyrir hönd 34 alþjóðlegra atvinnubifreiðablaðamanna sem skipa dómnefnd IVOTY:

„Það er ekki oft sem algjörlega ný hugsun á bak við sendibíla kemur fram og vekur svona mikla athygli markaðarins. Við óskum þróunarteymi Volkswagen-atvinnubíla til hamingju með að hafa skapað þetta einstaka ökutæki,“ sagði hann.

Meira en 13.700 ID Buzz hafa nú þegar verið pantaðir og er helmingur þeirra í Cargo-útgáfunni.