Landsliðsmaðurinn og atvinnumaðurinn fyrrverandi Kári Árnason hefur gengið til liðs við Viaplay. Hann verður hluti af teymi sérfræðinga sem mun fjalla um Meistaradeild Evrópu og landsleiki í knattspyrnu. Auk Kára munu þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson, umsjónarmenn hlaðvarpsins Steve Dagskrá, einnig koma að umfjöllun um knattspyrnu á Viaplay. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Kára Árnason á að baki glæstan feril bæði hérlendis og erlendis, að ógleymdum landsliðsferlinum. Hann varð sænskur meistari og bikarmeistari með Djurgården 2005 og aftur sænskur meistari með Malmö FF 2016. Á atvinnumannaferli sínum lék hann einnig með liðum á borð við Aberdeen FC, AGF Aarhus, Rotherham United, Plymouth Argyle og fleirum.

Þá var Kári lykilmaður í íslenska landsliðinu sem komst alla leið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi 2016 og lék á HM í Rússlandi tveimur árum síðar.

Árið 2019 kom sneri Kári heim úr atvinnumennskunni og gekk til liðs við uppeldisfélag sitt Víking. Með liði Víkings varð hann bikarmeistari 2019 og Íslands- og bikarmeistari 2021, áður en hann lagði skóna á hilluna. Kári sagði þó ekki skilið við uppeldisfélagið eftir að hafa lagt skóna á hilluna, því að síðasta tímabili loknu tók hann við starfi yfirmanns knattspyrnumála hjá félaginu.

„Viaplay hefur verið að gera mjög góða hluti og þar hefur verið mikill uppgangur í vandaðri og skemmtilegri íþróttaumfjöllun. Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við Viaplay og verða hluti af frábæru sérfræðingateymi, ásamt Rúrik Gíslasyni félaga mínum og öllum hinum snillingunum þar. Ég hef lifað og hrærst í fótbolta alla tíð og ég vona að reynsla mín sem fyrrum atvinnumaður muni nýtast á skjánum,“ segir Kári Árnason.

Félagarnir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson eru knattspyrnuáhugamönnum einnig að góðu kunnir. Þeir hafa vakið athygli með hlaðvarpi sínu Steve Dagskrá, þar sem umræða um fótbolta er í forgrunni en þeir hika þó ekki við að ræða önnur málefni sem eru í brennidepli hverju sinni. Hlaðvarpið hefur notið mikilla vinsælda síðan það hóf göngu sína árið 2019.

„Framundan er algjör fótboltaveisla á Viaplay. Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildin, Sambandsdeild Evrópu og þýska Bundesligan verða í beinni útsendingu og allir stærstu leikirnir verða krufnir til mergjar af sérfræðingum Viaplay. Fyrstur á dagskrá er stórleikur Paris Saint Germain og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu 15. febrúar kl. 19:15,“ segir í tilkynningu Viaplay.