Bandalag íslenskra blaðamanna hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins á Íslandi. EV6 hefur þegar hlotið verðlaun víðsvegar um heiminn frá því að hann var frumsýndur í nóvember á síðasta ári og hefur notið vinsælda hér á landi.

Stálstýrið, verðlaun Bandalags íslenskra blaðamanna, hafa verið veitt nánast árlega frá árinu 2001.

„Það er mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu á okkar heimamarkaði. Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með vinsældum EV6 út um allan heim. Við erum mjög stolt af þessum árangri og hlökkum til að halda áfram að færa Íslendingum framúrskarandi rafbíla á komandi misserum," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu.