Ölgerðin, framleiðandi Carlsberg bjórs á Íslandi, hefur lækkað verð á 330 ml Carlsberg dósum úr 305 kr. í 249 kr. í maí og hefur uppskriftin tekið töluverðum breytingum að því er fram kemur í tilkynningu frá Ölgerðinni.

„Uppskriftin var bætt og var þá áfengisprósentan hækkuð úr 4,5% í 5% til að gefa bjórnum meiri fyllingu og bæta bragðgæði og til að ramma inn þessa breytingu er nú kynnt til leiks útlitsbreyting á dósinni sem framvegis verður með mattri áferð,“ segir í tilkynningunni.

Ætlar Carlsberg jafnframt að bjóða Íslendingum sem aldur hafa til upp á ókeypis kranabjór, í samstarfi við valda veitingastaði og krár. Allir sem náð hafa aldri geta sótt sér frían kranabjór í gegnum appið Gefins, sem hægt er að sækja á snjallsíma í gegnum AppStore og GooglePlay.

„Með þessu vill Carlsberg Group sýna veitingamönnum samstöðu í verki, enda hefur veitingageirinn gengið í gegnum gríðarlega krefjandi tíma, og hvetja Íslendinga til að styðja við bakið á greininni. Á sama tíma er þó vert að minna neytendur á að fylgja þeim sóttvarnarreglum sem í gildi eru til hins ítrasta."

Carlsberg bruggsmiðjan hefur verið starfandi frá árinu 1847 og hefur Carlsberg bjórinn verið fáanlegur hérlendis um áratuga skeið. Í dag er bjórinn bruggaður hérlendis, og notað er íslenskt vatn við framleiðsluna,“ segir í fréttatilkynningu.