Listasýningin Málverk eftir Guðrúnu Einarsdóttur opnar laugardaginn 22. apríl frá kl 14-16 í Listvali á Granda, Hólmaslóð 6. Á sýningunni, sem verður opin til 20. maí, birtir Guðrún verk þar sem lífræn form, efniskennd og áferð eru allsráðandi.

Listval sérhæfir sig í myndlistarráðgjöf fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir, og hefur um skeið verið með sýningar á Hólmaslóð. Þá hefur Listval einnig haldið sýningar á jarðhæð Hörpu og í hönnunarversluninni Norr11.

Guðrún Einarsdóttir er einn fremsti íslenski myndlistarmaður samtímans. Undanfarna þrjá áratugi hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar bæði á Íslandi og erlendis. Verk Guðrúnar má finna bæði á opinberum söfnum sem og í einkaeign.

© Anna Kristín Óskarsdóttir (Anna Kristín Óskarsdóttir)

Á ferli sínum hefur Guðrún gert tilraunir með eiginleika olíunnar og þróað margs konar áferðir sem einkenna verk hennar. Úr verður einstakur myndheimur sem vísar í tilbrigði og form náttúrunnar, nokkurs konar efnislandslag á striga, eins og listamaðurinn segir sjálfur um verkin.

Verkin vinnur Guðrún flöt á borðum, mánuðum og jafnvel árum saman. Aðferðir hennar eru vísindalegar og nákvæmar en hún nýtir einnig þekkingu sína á lífrænu ferli efniviðarins þar sem hún leyfir því óvænta og ófyrirséða að gerast. Í verkum hennar finnum við vel fyrir náttúrunni. Áhorfandinn skynjar tilvísanir í fjölbreytt náttúrufyrirbæri og náttúruferli sem og síbreytilega mótun, líkt og formin hafi vaxið með og upp í gegnum strigann.