Reykjavík Bridgefestival er haldið í Hörpu í dag og næstu daga. Yfir 700 manns eru skráðir til þátttöku og munu þeir spila tvímenning á fimmtudag og föstudag og sveitakeppni á laugardag og sunnudag.

Um er að ræða eitt fjölmennasta bridgemót sem hefur verið haldið á Íslandi frá upphafi og hafa skráningar farið fram úr bjartsýnustu vonum að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Reykjavik Bridgefestival og Bridgesambands Íslands.

„Um þriðjungur spilara kemur erlendis frá og margir af bestu spilurum heims að mæta til leiks. Einnig mæta til leiks margir efnilegir spilarar. Það má m.a. nefna að í danska kvennalandsliðinu er meðalaldur spilara rétt yfir 20 ára og í tveimur bandarískum sveitum mæta nýkrýndir Bandaríkjameistarar ungmenna. Það er einnig áhugavert að yfir 60 ára aldursmunur er á yngsta og elsta keppanda mótsins,“ segir Matthías.

Hann segir þessa miklu þátttöku til marks um gríðarlega aukningu á áhuga á bridge hér á landi síðasta árið. „Það hefur verið mikil aukning á spilurum og aldrei í sögunni hafa jafn margir skráð sig á námskeið til að læra bridge,“ segir Matthías ennfremur.