Hlaupum hraðar – slítum fjötrana og sækjum tækifærin var yfirskrift Iðnþings 2021 sem fór fram í Silfurbergi í Hörpu í gær.

Á þinginu var kastljósinu beint að þeim fjötrum sem slíta þarf með markvissum hætti á næstu 12 mánuðum til að fyrirtæki geti skapað ný, eftirsótt störf og aukin verðmæti. Sækja þarf tækifærin með frekari umbótum og markaðssókn til að skapa auknar gjaldeyristekjur. Með því að slíta fjötrana getum við hlaupið hraðar.

Árni Sigurjónsson
Árni Sigurjónsson
© BIG (VB MYND/BIG)

Logi Bergmann stýrði þinginu og umræðum. Ávörp fluttu Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
© BIG (VB MYND/BIG)

Í fyrstu umræðum var rætt um hvernig efla megi samkeppnishæfni. Þar tóku þátt Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, Orri Hauksson, forstjóri Símans, og Tor Arne Berg, forstjóri Fjarðaáls.

© BIG (VB MYND/BIG)

Í kjölfarið tóku við umræður um hröðun uppbyggingar en þar voru Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB, Sigrún Melax, gæðastjóri JÁVERK, og Svanur Karl Grjetarsson, framkvæmdastjóri Mótx.

© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)

Þriðju og síðustu umræðurnar voru titlaðar Sækjum tækifærin . Í þeim tóku þátt Fida Abu Libdeh, forstjóri GeoSilica, og Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.

© BIG (VB MYND/BIG)

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, var með samantekt í lok þingsins.

Sigurður Hannesson
Sigurður Hannesson
© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)

© BIG (VB MYND/BIG)