atNorth vinnur nú að byggingu gagnavers við Hlíðarvelli á Akureyri. Framkvæmdir hófust um miðjan júlí og stefnt er að því að hefja reksturinn fyrir mitt ár 2023. Í vikunni voru síðustu þaksperrurnar í fyrstu byggingu gagnaversins reistar og af því tilefni var efnt til reisugillis fyrir helstu samstarfsaðila, verktaka og starfsfólk þeirra. Meðfylgjandi myndir voru teknar af því tilefni.

Fyrsti áfangi gagnaversins er um 2.500 fermetrar í tveimur samtengdum byggingum, en fullbyggt verður gagnaverið í fimm byggingum. Að auki er gert ráð fyrir þremur skrifstofu- og þjónustuhúsum á lóð atNorth. Gagnaverið er það fyrsta sinnar gerðar á svæðinu og mun nýtast viðskiptavinum atNorth á margvíslegan hátt – sérstaklega þeim sem vilja tryggja landfræðilegan aðskilnað gagna sem eru þegar hýst í öðrum gagnaverum.

Helstu verktakar við byggingu gagnaversins eru byggingafyrirtækin Perago Bygg og Lækjarsel, lagnafyrirtækið Áveitan, rafverktakinn Rafeyri og jarðvinnuverktakinn Finnur ehf. Hönnun hefur verið í höndum AVH, Raftákns, Verkíss á Akureyri og Elhönnunar.

„Framkvæmdir hafa gengið ótrúlega vel og maður trúir því varla, að í dag séu rétt um fjórir mánuðir frá samþykkt deiliskipulags fyrir svæðið. Sú staðreynd er góður vitnisburður um ykkur og gerir Akureyri að frábærum kosti fyrir þá sem vilja ráðast í uppbyggingu af hvaða tagi sem er,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.

Hann segir að lykilþáttur í valinu á Akureyri hafi verið framboð á margvíslegri tækni- og rekstrarþjónustu auk tryggs framboðs og flutnings á raforku, með tilkomu Hólasandslínu.