Rafbílinn Megane E-Tech verður frumsýndur hér á landi næstkomandi laugardag. Þessi nýi Megane hefur allt að 470 km drægni.

Megane hefur frá upphafi verið einn vinsælasti fjölskyldubíll Renault og hefur nú verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan og má segja að um algerlega nýjan bíl sé að ræða. Hefur hann þegar verið kjörinn fjölskyldubíll ársins hjá TopGear.

Megane E-Tech er boðinn í fimm mismunandi búnaðarútfærslum og vali um 40 kWh eða 60 kWh rafhlöðu við 160 kW rafmótor sem gefur annars vegar 130 hestöfl og allt að 300 drægni og hins vegar 220 hestöfl og allt að 470 km drægni. Bíllinn tekur mismunandi hleðslukosti, þar á meðal 22 kWh AC hleðslu, DC hleðslu og allt að 130kW hraðhleðslu í vönduðustu útgáfu bílsins sem gerir kleift að hlaða allt að 400 km drægni á rafhlöðuna á rúmum hálftíma.

Mikill og vandaður búnaður

Grunngerð Renault Megane E-Tech, sem ber heitið Equlibre (áður Zen), er mjög vel útbúin með 12“ skjá í mælaborði, vönduðu Arkamis hljómkerfi, hita í sætum og stýri og notendavænu Android/Google-stýrikerfi í margmiðlunarkerfi bílsins sem stjórnað er frá 9“ skjá. Þá er Equlibre einnig með bakmyndavél og nálægðarskynjurum, akgreinavara og stýringu, aðfellanlega hurðarhúna, vegaskiltisnema og fjölmargt fleira sem hægt er að kynna sér nánar í verðlista á renault.is.

Eins og áður segir er Renault Megane E-Tech boðinn í fimm mismunandi búnaðarútfærslum og er verðið frá 5.390 þúsundum króna fyrir Equlibre til 6.990 þúsunda króna fyrir Iconic sem er vandaðasta útgáfa Renault Megane E-Tech, sem ásamt öðru er m.a. búinn Harman Kardon hljómflutningskerfi. Bíllinn verður frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða á laugardag kl. 12 og 16.