Bónus opnaði í dag vefverslun utan um fatalínu merktri Bónusgrísnum sem dreifð var í valdar verslanir í haust.

Bónus gaf út nýja fatalínu í haust með derhúfum, bolum og hettupeysum „vegna mikillar eftirspurnar erlendis frá á sannkölluðu Bónus verði“ að því er segir í tilkynningu. Matvöruverslunin hefur nú gengið skrefi lengra og opnað netverslun þar sem að hægt er að versla fatnaðinn og fá pantanir sendar bæði erlendis og innanlands.

„Viðtökurnar við fatalínu Bónus hafa verið mjög skemmtilegar og farið fram úr okkar björtustu vonum. Við fáum næstum daglega fyrirspurnir um hvort að ekki sé hægt að fá varninginn sendan erlendis og einnig innanlands. Það er einstaklega ánægjulegt að geta orðið við þessum óskum með nýju netversluninni,” segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus.

„Þar sem að okkar kjarnastarfsemi er sala á matvöru á hagstæðu verði en ekki sala og dreifing á fatnaði ákváðum við að leita til Górilla vöruhús sem að sér um dreifingu og pantanir fyrir okkur. Nú geta viðskiptavinir pantað sér hátísku derhúfu, peysu eða boli með gamla eða nýja grísnum og fengið sendan út um allan heim.“