Kokkurinn Sigurjón Bragi Geirsson keppir fyrir hönd Íslands í virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d´Or, sem haldin verður í Lyon 22-23. janúar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu. Tuttugu og fjórar þjóðir fá keppnisrétt í Lyon eftir að hafa tryggt sig inn í keppnina í gegnum forkeppni í sinni heimsálfu. Sigurjón, sem vann keppnina Kokkur Ársins 2019 hér á landi, hreppti 5.sætið í Bocuse d´Or Europe sem fram fór í Budapest í október síðastliðnum.

Í tilkynningu kemur fram að undirbúningur hafi staðið yfir mánuðum saman. Tæpt tonn af eldhúsáhöldum og tækjum, sem Sigurjón mun styðjast við í keppninni, hafi verið sent til Lyon. Þjálfari Sigurjóns er Sigurður Laufdal, Bocuse d´Or keppandi 2013 og 2021. Þá er Guðmundur Bender aðstoðarmaður Sigurjóns.

Sigurjón verður fjórði keppendinn í eldhúsið í Lyon, næstkomandi mánudag kl. 08:52 að staðartíma. Þar mun hann reiða fram þrjá rétti sem þurfa allir að innihalda grasker og fiskfat. Aðalhráefnið verður skötuselur, hörpuskel og bláskel.

Jafnframt segir í tilkynningunni að hvert þátttökuland eigi fulltrúa í dómarateymi Bocuse d´Or og í þetta sinn muni Friðgeir Eiríksson dæma fyrir hönd Bocuse d´Or akademíunnar á Íslandi. Úrslit keppninnar muni síðan liggja fyrir seinni part mánudags. Bocuse d´Or akademían á Íslandi sé hópur fyrrverandi keppenda sem heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.

Íslendingar náð góðum árangri í Bocuse d´Or

„Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók

þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa

Íslendingar ávallt verið í tíu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már

Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 er þeir náðu báðir í

bronsverðlaun,“ segir í fréttatilkynningu.