Á lokaviðburði Meistaradeildar í hestaíþróttum kynnir sprotafyrirtækið HorseDay samnefnt smáforrit sem ætlað er að verða miðpunktur samfélagsins um íslenska hestinn.

Með forritinu fæst yfirsýn yfr þjálfun hestsins og umhirðu. Auk þess býður forritið upp á beina tengingu við WorldFeng og GPS skráningu á hestaferðum líkt og þekkist innan tómstunda með forritinu Strava.

Hugmyndin að HorseDay fæddist í hesthúsi þar sem hestafólk er vant að halda utan um skráningu á daglegum atburðum hestanna á tússtöflum. Vaninn er sá að töflurnar eru þurrkaðar og tapast þannig yfirsýn og innsýn í umsjón og umhirðu hestsins. HorseDay er beintengt við gagnagrunn WorldFengs þar sem íslenskir hestar um allan heim eru skráðir. Þegar prófíll er stofnaður fyrir hest eru upplýsingar um hann sóttar beint í WorldFeng.

Meðal stofnenda smáforritsins eru feðgarnir Ólafur H. Einarsson og Oddur Ólafsson. Oddur segir að það séu mikil tækifæri í því að bæta virkni forritsins og upplifun notenda enn frekar. Hann nefnir gangtegundagreiningu, en HorseDay verður fyrsta smáforritið sem getur greint allar gangtegundir íslenska hestsins án aukabúnaðar.

HorseDay er fáanlegt á App Store og Google Play, en forritið hefur notið styrkja frá Tækniþróunarsjóði, Stofnverndunarsjóði íslenska hestakynsins og Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Hönnunarskrifstofan Metall kom að hönnun og flæði smáforritsins ásamt hönnun vörumerkisins og framsetningu þess og hugbúnaðarfyrirtækið REON kom að forritun og þróun hugbúnaðarins.

Ólafur H. Einarsson, einn stofnenda HorseDay

„Okkur hefur tekist að búa til nýjung sem leysir þarfir hestaeigenda með skemmtilegum og hagnýtum hætti. Við sem stöndum að þróun hugbúnaðarins erum hestafólk, reiðmenn, ræktendur, bæði áhugamenn og atvinnufólk úr geiranum, sem sá að þessa lausn vantaði."

Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay

„Við ætlum að verða leiðandi smáforritið fyrir íslenska hesta á Íslandi en líka á heimsvísu. Við höfum nú náð vissum áfanga í þróuninni og fannst tímabært að kynna smáforritið fyrir markaðnum jafnvel þótt við séum langt frá því að vera komin á leiðarenda."