Skemmtigarðurinn Grafarvogi hefur opnað nýja afþreyingu sem kallast Útrásin. Þar hafa verið byggð nokkur herbergi sem eru innréttuð eins og litlar íbúðir með hillum og munum eins og styttum, tölvum, sjónvarpi, glösum og diskum svo dæmi séu nefnd. Fólk velur sjálft hvað er inni í herberginu. Viðkomandi sem er mættur til að fá útrás er svo settur í galla og fær hjálm. Viðkomandi velur sér barefli við hæfi og fær svo að fara inn í herbergi til að sturlast með bareflið og brjóta allt sem er inni í herberginu. Útrásin er því sannarlega staður til að sturlast.

„Við þurfum að finna eitthvað sniðugt í skammdeginu og inn í það ástand sem Covid hefur skapað okkur. Ég hafði verið með í hausnum í nokkur ár að setja upp útrárasarherbergi og ákváðum við bara að kýla á það núna. Við þurftum að plana þetta jafn óðum og við vorum í framkvæmdunum. Hvar fáum við dótið sem á að skemma? Fyrir hvern er þjónustan? Hvar fáum við bareflin? Þetta prjónaðist svo allt saman jafn óðum. Við þurftum til dæmis að þræða búðir til að leita að bareflum sem eru núna mjög fjölbreytt. Nú tveimur mánuðum síðar er þetta klárt og þeir sem hafa prófað fá gríðarlega útrás og skemmta sér vel. Þetta er samt það steiktasta sem við höfum gert," segir Snorri Helgason hjá Skemmtigarðinum, um þessa nýju þjónustu.

Upprunalega sálfræðimeðferð

Útrásin er upprunin frá Japan þar sem fólk í viðskiptalífinu var undir gríðalegu álagi og þurfti að byrgja öll sín vonbryggði og reiði inn í sér. Það þótti ekki gott og fundin var leið fyrir fólkið til að hleypa reiðinni út í lok vinnudags. Sérstök herbergi voru útbúin og fólk fékk að ganga af göflunum með barefli og brjóta allt og bramla. Það þótti virka vel ásamt því að fólkið skemmti sér vel við að fá útrásina. Hugmyndin ferðaðist svo um heiminn og nú er þessi hugmynd mjög stór í Bandaríkjunum þar sem fólk skemmtir sér og fær útrás í leiðinni.

„Við töluðum við tvo sálfræðinga um það hvort þessi þjónusta gæti nýst í einhverjar meðferðir og þeim fannst það að þetta myndi vera eitthvað sem gæti virkað, sérstaklega þar sem allt er tekið upp á HD tökuvél svo hægt væri að skoða myndbandið með skjólstæðingunum. En við erum samt aðallega að hugsa þetta hjá okkur sem afþreyingu," segir Snorri um sálfræðimeðferðir.

„Þetta er skemmtun, fólk mætir, fer í galla, velur sér vopn, velur sér hvernig hluti það vill hafa inni og verður svo bara brjálað og brýtur allt og bramlar. Það virðist vera að konur séu áhugasamari um þetta þar sem þær eru í meirihluta þeirra sem hafa nú þegar komið til að prófa. Þetta er 10 ára gamalt konsept sem hefur þróast vel alþjóðlega og aukið vinsældir sínar stöðugt. Allir þurfa útrás og þetta er frábær leið til að fá hana," segir segir Snorri ennfremur.