Stangaveiðifélag Reykjavíkur ( SVFR ) og Veiðifélag Sandár hafa undirritað samning um langtímasamstarf, frá og með sumrinu 2021. Veitt er á 3 til 4 stangir ánni og sjá veiðimenn um sig sjálfir. Veiðisvæði Sandár er um 14 km langt frá sjávarósi og allt upp að Sandárfossi og eru merktir veiðistaðir um 40 talsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVFR .

Það að Stangaveiðifélag Reykjavíkur sé búið að gera leigusamning við Veiðifélag Sandár eru söguleg tíðindi, því allt frá árinu 1964 hefur áin verið í leigu hjá lokuðum hópi einstaklinga – veiðifélaginu Þistlum - sem hafa skipt veiðitímabilinu á milli sín. Áin hefur fyrir vikið verið sveipuð mikilli dulúð og mun færri komist að henni en hafa viljað.

Sandá
Sandá
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Það er í einu orði sagt stórkostlegt fyrir SVFR að geta boðið sínum félagsmönnum leyfi í þessari perlu Þistilfjarðar, sem er í hópi albestu laxveiðiáa landsins,“ segir Jón Þór Ólason, formaður SVFR . „Hún eykur fjölbreytnina í ársvæðaflóru SVFR , þar sem áin er í sjálfsmennsku og fellur fullkomlega að þörfum margra félagsmanna. Þá er Sandá sannkölluð stórlaxaá og er ánægjuefni að bæta slíku ársvæði við þá flóru sem við höfum upp á að bjóða. Það er stórkostleg upplifun að veiða Sandá. Hún er margslungin og fjölbreytt, því bæði er veitt í tilkomumiklum gljúfrum, straumþungum strengjum, á guðdómlegum breiðum og í löngum, djúpum hyljum. Sandá býður einfaldlega upp á allt.".

Sandá
Sandá
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vegna leyndarinnar, sem hvílt hefur yfir Sandá, er lítið til að mynd- og kynningarefni. Mun SVFR bæta úr því og kynna þessa „kynngimögnuðu á vandlega áður en sala veiðileyfa hefst síðar á árinu,“ segir til tilkynningunni.

„Við erum stolt af því að landeigendur við Sandá hafi valið að ganga til samninga við SVFR þegar ákvörðun lá fyrir um að endurnýja ekki samning við núverandi leigutaka,“ segir Jón Þór. Við munum leggja okkur öll fram við að vernda og hlúa að þessari miklu veiðiperlu og hlökkum mjög til samstarfsins við heimamenn um frekari uppbyggingu ársvæðisins. Þetta eru mikil tímamót enda eru það margir sem eiga þann draum að egna fyrir stórlaxinn í Sandá.“

Sandá
Sandá
© Aðsend mynd (AÐSEND)