Matreiðslumeistarinn og hestakonan Margrét Ríkharðsdóttir deilir einum vinsælasta rétti Duck&Rose með lesendum.

Margrét er mikil stemingskona, að eigin sögn. En hún starfar sem yfirkokkur á Duck&Rose ásamt því að vera í eigendahópi veitingastaðarins.

Margrét Ríkharðsdóttir.
Margrét Ríkharðsdóttir.

Árið 2010 útskrifaðist hún sem kokkur en fimm árum seinna lauk hún við meistaranámið samhliða því að vera yfirkokkur á Bryggjunni Brugghús. En þar starfaði hún áður en henni bauðst staða yfirkokks á Duck&Rose fyrir rúmlega þremur árum.

„Uppskriftin er frekar þæginleg, einföld og einstaklega hugguleg með góðu hvítvíni. Ég mæli svo með því að kíkja til Sigga í fiskbúðina á Sundlaugarvegi til þess að versla sjávarfang í réttinn! Það er líka geggjað að bæta við bláskel þegar hún er fáanleg.“
Uppskriftin er ætluð fyrir fjóra.

Innihald:

Sítrónusósa

  • 4 msk Smjör
  • 1 msk Hveiti
  • 3 Hvítlauksgeirar, smátt skornir
  • ½ bolli Hvítvín
  • 2 ½ msk sítrónusafi
  • 1 msk Sítrónubörkur frá Mabrúka
  • 1 msk Sítrónublanda frá Mabrúka
  • 2 bollar Rjómi
  • Salt og pipar frá Mabrúka

Pasta & Skelfiskur

  • Tagliatelle, ferskt 1 pakki
  • Tígrisrækjur og Hörpuskel eftir smekk
  • Börkur af ferskri sítrónu
  • Basil
  • Svartur pipar frá Mabrúka

Aðferð:

Sítrónusósa

  • Smjör er brætt í potti þangað til það fer að krauma.
  • Bætið hveitinu saman við, hvítlauknum og kryddinu.
  • Hrærið vel svo úr verði smjörbolla.
  • Þegar hún er komin saman bætið þá hvítvíni og sítrónusafa saman við hrærið vel.
  • Setjið loks rjómann saman við og kryddið til með salti og pipar.
  • Látið hitna upp að suðu.
  • Slökkvið undir sósunni.

Pasta & Skelfiskur

  • Ferskt pasta soðið samkæmt leiðbeningum.
  • Skelfiskur steiktur á heitri pönnu og fiskurinn kryddaður með sítrónublöndu og salti.
  • Þegar pastað er soðið er vatninu hellt af pastanu og fiskurinn sett út í sósuna og hitað örlítið saman.
  • Skreytið með ferskri basiliku og rífið ferskan sítrónubörk yfir.