
Tilkynnt hefur verið hvaða veitingastaðir eru tilnefndir til Icelandic Lamb Award of Excellence 2020, en viðurkenningarnar verða afhentar fimmtudaginn 28. maí 2020.
Þetta er í fjórða sinn sem Markaðsstofan Icelandic Lamb veitir þessar viðurkenningar, en þær eru veittar veitingastöðum sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu ári í framreiðslu á íslensku lambakjöti.
Eliza Reid, forsetafrú, ávarpar samkomuna og veitir viðurkenningarnar, við hátíðlega athöfn í Vinnustofu Kjarvals í Austurstræti og hefst athöfnin kl. 14:30. Veittar verða viðurkenningar í þremur flokkum; Sælkeraveitingastaðir, Bistro og götumat.
Hér er yfirlit yfir þá veitingastaði sem eru tilnefndir í flokkunum þremur:
Sælkeraveitingastaðir (Fine Dining):
Bistro:
Götumatur (Street Food):