
18 bílar eru komnir í úrslit í valinu fyrir Bíl ársins 2017 en það er dómnefnd Bandalags íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem sér um valið. Alls komast þrír bílar áfram í hverjum flokki en flokkarnir eru nú sex talsins. Lokaprófanir á þessum bílum mun fara fram á næstunni og því styttist í endanlegt val á Bíl ársins hér á landi þetta árið.
Í flokki smábíla og minni millistærðarbíla komast áfram í stafrófsröð Opel Astra, Renault Megane, og Suzuki Baleno. Í flokki millistærðar, stærri fjölskyldubíla og lúxusbíla komast áfram Mercedes-Benz E-lína, Renault Talisman og VW Passat GTE. Í sportbílaflokki komast áfram Ford Focus RS, Lexus RC300h og VW Golf GTI Clubsport.
Í flokki jepplinga komast áfram Honda HRV, Kia Sportage og VW Tiguan. Í flokki jeppa komast áfram Audi Q7 E-Tron, BMW X5 Pug-in Hybrid og Lexus RX450h. Loks er flokkur pallbíla í fyrsta skipti en þar komast áfram Mitsubishi L200, Nissan Navara og Toyota Hilux.