
Fyrir fáeinum vikum kom fjórhjóladrifni rafbíllinn Jaguar I-Pace fram á sjónarsviðið eins og stormsveipur. Jaguar I-Pace hefur allt að 470 km drægni við venjubundna daglega notkun í ECO-stillingu samkvæmt nýja mælistaðlinum WTPL. I-Pace er búinn tveimur rafmótorum sem saman skila um 696 Nm togi og er hann aðeins 4,8 sek. í 100 km/klst.
Vegna straumlínulögunar, háþróaðs fjórhjóladrifs og lágs og miðlægs þyngdarpunkts steinliggur bíllinn eins og sönnum sportbíl sæmir. Vegna snjalltækni I-Pace og þráðlausrar nettengingar er það ætlun Jaguar að hægt verið að hlaðið sjálfkrafa niður uppfærslum á hugbúnaði fyrir stjórnkerfi I-Pace.
Jaguar I-Pace var í síðustu viku kjörinn „Bíll ársins 2019“ í Þýskalandi að undangenginni prófun á 59 öðrum bíltegundum og gerðum. Þjóðverjar kusu I-Pace „vegna byltingarkennds samspils aksturseiginleika, afkasta og hönnunar.“ Þegar úrslitin voru kynnt sagði Jens Meiners, formaður þýsku dómnefndarinnar, að ekki aðeins væri I-Pace fyrsti lúxusrafbíll hins rótgróna breska bílaframleiðanda, heldur veiti I-Pace skilyrðislaust alla helstu kosti rafmagnstækninnar.
Þeir birtast m.a. í heillandi afköstum og hönnun sem skiluðu honum sigursætinu í vali á bíl ársins 2019 í Þýskalandi. Þess má geta að lokum að nýlega lögðu stjórnendur breska bílaþáttarins Top Gear hjá BBC mat á rafbílana á breska markaðnum. Eftir ítarlegar prófanir á tíu helstu bíltegundunum komust þeir að þeirri niðurstöðu að fyrir sitt leyti væri I-Pace án efa sá besti.