
Íbúar um heim allan þurf nú að breyta áætlunum sínum vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Breskur Íslandsvinur, búsettur í Tonbrigde í Kent á Englandi, dó ekki ráðalaus þó ekki hafi orðið að Íslandsferð þar sem hann ætlaði að biðja sinnar heittelskuðu. Hann fór einfaldalega með henni í næstu Iceland verslun og skellti sér á skeljarnar.
Iceland Foods greindi frá þessu á Facebook og segist ætla að bjóða þeim í brúðkaupsferð til Íslands.
Færslan hefur vakið talverða lukku. Tugir þúsunda hafa deilt færslunni, skrifað athugasemdir eða smellt á „like" hnappinn.